2.11.2024 | 13:14
Aprílsólarkuldi e. Elísabet Jökulsdóttir
Þegar Elísabet Jökulsdóttir býður lesendum með í innra ferðalag gildir miðinn alla leið. Sú tilfinning fylgir mér þegar ég les Aprílsólarkulda; ég fæ að lifa með í veruleika aðalpersónunnar Védísar, hvort sem þar ríkir sorg sem kann ekki að vera til, ástin innilega í öllum sínum fimleikum eða ein-semdin þegar orðin hætta að virka.
Aprílsólarkuldi lýsir föðurmissi Védísar, skóla-stúlku sem er einstæð móðir; ástinni sem kemur næstum jafn óvænt og ferlinu inn í sjúkdóm, öllu í einni augnablikseilífð. Reykjavík og hennar fólk fær á sig sérstakan blæ með lýsingum í ekta Elísabetarstíl sem hér er djúptær, litaður flæði og frelsi ljóðsins.
Hún kann að láta húsin lifna og anda líkt og landslag, líka bilið á milli þeirra. Hvergi skortir skarpskyggni né húmor í mannlýsingum, lituðum af tíðaranda í lok áttunda áratugarins: einn og annar Kristjaníufari kominn heim, hasspartí hvunndagsmatur og farið að draga úr hippalátum 68-kynslóðarinnar; nú á að fóta sig í frelsinu.
Hvað gerist milli fólks þegar orðin bregðast? Glata merkingunni. Þegar tengslin við tungumálið bresta, hvað er þá til ráða? því heimurinn mun ekki standa nema vegna merkingar, annars mun hann sáldrast niður og manneskjan getur annars ekki lifað í heiminum, segir í sögunni.
Aprílsólarkuldi hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2020.
"Elísabet Kristín Jökulsdóttir er höfundur smárra bóka fremur en stórra skáldsagna með miklu magni af blaðsíðum og breiðum sögulegum lýsingum. Hún er fremur skáld augnabliksins en heilla æviskeiða því hún dvelur meira við það sem stendur okkur nær og býr innra með okkur, rennur í blóðinu, slær í hjartanu, finnst við snertingu og ertir hugann. Verk hennar fóðra hversdagslega skynjun okkar og upplifun og eru tilfinningalega snertanleg en ekki fjarlæg og óhöndlanleg. Hinar einstöku og smáu lýsingar hennar ná alltaf almennri og djúpri skírskotun í huga lesandans og þó hún dvelji við sitt eigið líf verður það henni að endalausri uppsprettu. ... meira"
Bækur | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)