25.3.2012 | 14:49
Skipafréttir e. Annie Proulx (janúar)

Quoyle er þriðja flokks blaðamaður frá New York. Hann hefur hvorki þegið hæfileika né heppni í vöggugjöf og er auk þess ófríður með afbrigðum. Þegar kona hans ferst sviplega í bílslysi er hann sem frjáls undan oki og heldur norður á bóginn með föðursystur sinni og dætrum Bunny og Sunshine burt frá beiskum minningum. Þau stefna á ystu strendur Nýfundnalands, þangað sem þau eiga rætur að rekja og setjast að í húsi forfeðranna. Þá lýkst upp nýr og magnaður heimur fyrir litlu fjölskyldunni og í nábýli við náttúruöflin vaknar Quoyle smám saman til lífsins.
Fáar skáldsögur síðustu ára hafa hlotið aðra eins viðurkenningu og vinsældir og Skipafréttir og eftir sögunni var gerð rómuð kvikmynd. Leiftrandi stíll, húmor og óvenjulegt innsæi í mannlegt sálarlíf hafa skipað Annie Proulx í fremstu röð bandarískra rithöfunda okkar daga.
Bókin hlaut National Book Award 1993 og Pulitzer-verðlaunin 1994.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.