2.11.2012 | 21:57
Kvöldverðurinn e. Herman Koch

Bræðurnir Paul og Serge sitja á glæsilegum veitingahúsi ásamt eiginkonum sínum. Á yfirborðinu virðist allt slétt og fellt.
Þau spjalla um kvikmyndir, sumarleyfi en allt annað hvílir á þeim eins og mara: Fimmtán ára synir þeirra hafa framið ódæðisverk sem vekur óhug hjá þjóðinni og aðeins foreldrarnir vita hverjir hinir seku eru enn sem komið er. Eiga þau að horfast í augu við voðaverkið og kalla drengina til ábyrgðar? Eða eiga þau að vernda synina og orðspor fjölskyldunnar hvað sem það kostar? Einstaklega vel fléttuð og spennandi saga sem vakið hefur heimsathygli.
Höfundurinn Herman Koch er þekktur fyrir ágengan stíl; verk hans enduróma skilning á mannlegum breyskleika og flóknum samskiptum fólks. Verðlaunasaga þessi var valin bók ársins í Hollandi árið 2009. Sagan fjallar vissulega um glæp en meginþema bókarinnar virðist vera siðleysi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.