1.2.2015 | 10:23
Íslensku bókmenntaverðlaunin 2014
verðlaun voru veitt í þremur flokkum:
- í flokki fagurbókmennta, Ófeigur Sigurðsson fyrir skáldsöguna Öræfi,
- í flokki barna- og ungmennabóka, Bryndís Björgvinsdóttir fyrir Hafnfirðingabrandarann
- í flokki fræðirita og bóka almenns eðlis, Snorri Baldursson fyrir Lífríki Íslands Vistkerfi lands og sjávar.
Spurningar sem varða sjálfsmynd okkar
Í rökstuðningi fyrir veitingu verðlaunanna segir meðal annars um Öræfi Ófeigs Sigurðssonar: Í kraftmiklum texta þar sem skiptist á fjarstæðukennt skop og römm alvara, kostuleg uppátæki og harmræn sýn á líf Íslendinga gegnum aldirnar, tekst höfundurinn á við þær spurningar sem blasa við Íslendingum á nýrri öld og varða sjálfsmynd okkar, virðingu fyrir sögu okkar og menningu og umgengni okkar við íslenska náttúru og þá ógn og ægifegurð sem í henni býr.
Hér fyrir neðan má sjá allar þær bækur sem tilnefndar voru til verðlaunanna í ár.
Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki fagurbókmennta:
- Guðbergur Bergsson: Þrír sneru aftur (JPV útgáfa).
- Gyrðir Elíasson: Koparakur (Dimma).
- Kristín Eiríksdóttir: Kok (JPV útgáfa).
- Ófeigur Sigurðsson: Öræfi (Mál og menning).
- Þórdís Gísladóttir: Velúr (Bjartur).
Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki barna- og unglingabóka:
- Ármann Jakobsson: Síðasti galdrameistarinn (JPV útgáfa).
- Bryndís Björgvinsdóttir: Hafnfirðingabrandarinn (Vaka-Helgafell).
- Eva Þengilsdóttir: Nála riddarasaga (Bókaútgáfan Salka).
- Þórarinn Eldjárn og Sigrún Eldjárn: Fuglaþrugl og naflakrafl (Vaka-Helgafell).
- Þórarinn Leifsson: Maðurinn sem hataði börn (Mál og menning).
Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlaunanna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis:
- Björg Guðrún Gísladóttir: Hljóðin í nóttinni (Veröld).
- Eggert Þór Bernharðsson: Sveitin í sálinni Búskapur og ræktun í Reykjavík 1930-1970 (JPV útgáfa).
- Pétur H. Ármannsson ritstýrði: Gunnlaugur Halldórsson Arkitekt (Hið íslenska bókmenntafélag).
- Snorri Baldursson: Lífríki Íslands Vistkerfi lands og sjávar (Forlagið og Bókaútgáfan Opna).
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.