Framúrskarandi vinkona e. Elena Ferrante

framurskarandivinkonaFramúrskarandi vinkona er skáldsaga eftir ítalska höfundinn Elena Ferrante, fyrsta bók af fjórum um vinkonurnar Lilu og Elenu.

Napólí-sögur Elenu Ferrante fara nú sannkallaða sigurför um heiminn. Framúrskarandi vinkona segir frá vinkonunum Elenu og Lilu, uppvaxtarárum þeirra í alþýðlegur hverfi í Napólí, á sjötta áratugnum, þegar heimurinn er að taka miklum stakkaskiptum. Þetta er saga af vináttu, umbreytingum og lífsins gangi.

Aðalpersónurnar, Elena, dóttir dyravarðar, og Lila, dóttir skósmiðs, alast upp í Napólí á sjötta áratugnum í samfélagi þar sem ofbeldi telst sjálfsagður hlutur og konur jafnt sem karlmenn grípa til þess í sjálfsbjargarviðleitni. Eins og sögumaðurinn Elena segir: „Við ólumst upp við þá vitneskju að við ættum að gera öðrum lífið erfitt áður en þeir gætu gert okkur það erfitt.“ Menntunin verður flóttaleið Elenu frá grimmd umhverfisins en leiðir einnig til þess að hún verður ekki lengur hluti af þeim hóp sem hún ólst upp með. Hin sérstæða Lila fer aðra leið sem er í mikilli mótsögn við eðli hennar og getur varla fært henni annað en óhamingju.

Elena Ferrante er einn vinsælasti höfundur Ítalíu um þessar mundir, og bækur hennar eru þýddar á ótal tungumál. Ferrante fer huldu höfði, hefur aldrei veitt viðtöl eða komið fram. Í bréfi til útgefanda síns hefur hún sagt að bækurnar tali fyrir sig sjálfar og þurfi hennar ekki lengur með. Brynja Cortes Andrésdóttir þýddi úr ítölsku.

http://www.ruv.is/frett/hver-er-eiginlega-elena-ferrante


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband