Furðulegt háttalag hunds um nótt e. Mark Haddon

undarlegtKristófer Boone er fimmtán ára strákur með einhverfuröskun. Hann er góður í stærðfræði og aðdáandi Sherlock Holmes en á erfitt með að skilja annað fólk og ýmislegt sem það gerir. Þegar hann rekst á hund nágrannans rekinn í gegn með garðkvísl ákveður hann að finna morðingjann og skrifa leynilögreglusögu um leitina. En verkefnið vindur upp á sig og á endanum leysir Kristófer allt aðra og miklu stærri gátu en hann ætlaði sér. Furðulegt háttalag hunds um nótt er einstök skáldsaga sem lætur engan ósnortinn. Hún hlaut öll helstu bókmenntaverðlaun Bretlands árið sem hún kom út, bæði í flokki barnabóka og skáldsagna fyrir fullorðna, meðal annars hin virtu Whitbread-verðlaun.

"Kristófer er einstakur drengur og eins og margt fólk sem er öðruvísir en aðrir hefur hann fengið þá sérstöku náðargáfu að geta reiknað ótrúlegar erfiðar stærfræðiþrautir í huganum. Kristófer hefur búið sér til sinn leik í sínum hugarheimi sem gengur út á það að í skólabílnum á morgnana telur hann bíla eftir litum og hefur hver litur og fjöldi einhverja þýðingu. Ef hann sér þrjá rauða bíla í röð verður dagurinn góður en ef hann telur fjóra rauða bíla í röð verður dagurinn sérlega góður. Aftur á móti ef hann telur fjóra gula bíla í röð verður svartur dagur."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband