18.10.2021 | 20:09
Ráðskonan og prófessorinn e. Yoko Ogawa
Hann er snjall stærðfræðiprófessor sem hefur aðeins áttatíu mínútna skammtímaminni en hugur hans er enn fullur af stærðfræðiformúlum fyrri tíma.
Hún er ung ráðskona og á tíu ára gamlan son. Á hverjum morgni kynnast ráðskonan og prófessorinn upp á nýtt.
Prófessorinn hefur einstakan hæfileika til þess að tengja saman einföldustu atriði skóstærðir, afmælisdaga og heiminn eins og hann leggur sig. Og hann leggur fyrir mæðginin þrautir sem tengja þau böndum sem rista dýpra en minnið nær.
Ráðskonan og prófessorinn fékk verðlaun japanskra bóksala árið 2004.
Yoko Ogawa hefur skrifað yfir 20 margverðlaunaðar bækur.
https://www.forlagid.is/vara/ra%C3%B0skonan-og-professorinn/
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1472736/
http://52baekur.blogspot.com/2013/06/bok-25-raskonan-og-professorinn.html
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.